Golf.is

Vafrakökur

Hér segjum við hvaða vafrakökur og aðra geymslu Rástímar.is notar, til hvers, og hvernig þú breytir vali þínu.

Hvað eru vafrakökur?

Vafrakökur eru litlar textaskrár sem vefsíða vistar í vafranum þínum. Vefurinn notar líka geymslu vafrans (localStorage og sessionStorage), sem virkar á svipaðan hátt. Hér köllum við hvort tveggja vafrakökur.

Nauðsynleg geymsla

Þessi geymsla lætur vefinn virka eins og þú býst við og er alltaf virk. Hún er aðeins í vafranum þínum. Við sendum hana hvorki til okkar né til annarra.

Hún man til dæmis val þitt um vafrakökur, þema og tungumál, uppáhaldsvelli, -mót og -kylfinga, og hvernig þú vilt sjá lista. Eftir bókun í golfhermi man hún nafn þitt og samskiptaupplýsingar, svo þú þurfir ekki að slá þær inn aftur, og hún geymir hálfkláraða bókun ef þú lokar glugganum óvart.

Greiðslur í golfherma fara í gegnum Teya. Kortaupplýsingar fara beint til Teya og koma aldrei til okkar. Greiðslugluggi Teya getur notað eigin nauðsynlegar vafrakökur til að ljúka greiðslu.

Tölfræði (aðeins með samþykki)

Með þínu samþykki notum við tölfræðivafrakökur til að skilja hvernig vefurinn er notaður, til dæmis hvaða síður eru skoðaðar, svo við getum bætt hann. Þessar vafrakökur eru aðeins settar ef þú samþykkir þær.

Tölfræðin byggir á upplýsingum um notkun vefsins, svo sem síður sem eru skoðaðar, tegund tækis og áætlaða staðsetningu. Við notum þær aðeins í samanteknu formi. Þjónustuaðilinn sem vinnur tölfræðina fyrir okkur getur unnið gögnin utan Evrópska efnahagssvæðisins, með viðeigandi verndarráðstöfunum.

Efni frá öðrum

Sumar síður sýna efni frá öðrum: myndbönd frá YouTube, útsendingar frá RÚV, veðurspá frá Golfspá og kort frá Kortey. Þessir aðilar geta sett eigin vafrakökur þegar efnið birtist eða er spilað, samkvæmt eigin skilmálum. YouTube-myndböndin nota stillingu sem setur ekki vafrakökur fyrr en þú spilar myndband.

Að breyta vali þínu

Þú getur breytt vali þínu hvenær sem er í . Ef þú dregur samþykkið til baka eyðum við tölfræðivafrakökunum. Þú getur líka eytt vafrakökum og geymslu í stillingum vafrans.

Spurningar

Ef þú hefur spurningar um vafrakökur eða persónuupplýsingar, sendu okkur póst á rastimar@golf.is