



Hólmsvöllur í Leiru
Golfklúbbur SuðurnesjaUm völlinn
Hólmsvöllur í Leiru er mörgum íslenskum kylfingum að góðu kunnur, enda rótgróinn keppnisvöllur þar sem margsinnis hafa farið fram Íslandsmót auk Norðurlandamóts og Evrópumóts eldri kylfinga. Það er hér, við þjóðveginn milli Garðs og Reykjanesbæjar, sem Golfklúbbur Suðurnesja hefur aðsetur. Hólmsvelli svipar að mörgu leyti til breskra strandvalla. Náttúruöflin eru hér hluti af leiknum og þeirri upplifun sem honum fylgir. Leiran er þekkt fyrir krefjandi upphafsholur sínar, og þá einna helst þriðju brautina – Bergvíkina – þar sem aðeins þeir hörðustu þora að slá beint á flöt, yfir öldurótið sem lætur kröftuglega í sér heyra. Reynir þar verulega á einbeitingu þess sem slær.
Skorkort
Teigur
Fyrri 9
| Hola | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | Út | |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Lengd | 304 | 324 | 359 | 323 | 178 | 476 | 521 | 351 | 138 | 2974 | |
| Par | 4 | 4 | 4 | 4 | 3 | 5 | 5 | 4 | 3 | 36 | |
| Fgj. | 16 | 14 | 4 | 10 | 2 | 12 | 8 | 6 | 18 | - |
Seinni 9
| Hola | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | Inn | Samtals |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Lengd | 401 | 325 | 180 | 373 | 394 | 305 | 147 | 329 | 474 | 2928 | 5902 |
| Par | 4 | 4 | 3 | 4 | 4 | 4 | 3 | 4 | 5 | 35 | 71 |
| Fgj. | 11 | 3 | 5 | 1 | 7 | 15 | 17 | 9 | 13 | - | - |
Course Rating
Karlar
71.3
Slope Rating
Karlar
130
Forgjafarreiknir
Teigur
Hvítur
Vallarforgjöfin þín–
Staðsetning
Garðskagavegur, 232 ReykjanesbærSkoða á korti
Hafa samband
Veður
Sæki veður...
Lausir tímar
Uppfært 21:16Engir lausir tímar fundust
